Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Myndir!

16. október 2006 klukkan 23:31
Takk fyrir síðast fólk! Svalur

Er búin að skella nokkrum myndum frá húfudjamminu inn á netið (linkur hér til hægri)
ef þið hafið fleirri skemmtilegar myndir endilega setið link á þær í athugasemdir

Kv. Sunna Gunnars
Hanna Lilja Oddgeirsdóttir
1 athugasemd

NÆSTA HELGI !!!

10. október 2006 klukkan 04:04

FRÍKIRKJUSALURINN LAUFÁSVEGI 13
ca KL 21
LAUGARDAGURINN 14. OKTÓBER 2006
BÚSIÐ MEÐ, ÁFENGT EÐUR EI

HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ YKKUR Svalur

Eftirlegukindur- síðasti séns til þess að borga og vera memm Hissa
tala við: Eyrúnu FÞ, Sunnu eða Rut FF, Önnu Lind í T, Örnu í NÞ, Pétur í NF

P.s erum rosalega ánægð hvað allir eru spenntir fyrir þessu og margir ætla að mæta!
Hanna Lilja Oddgeirsdóttir
4 athugasemdir

Húfudjamm nánar

26. september 2006 klukkan 20:03

ok hér koma nánari upplýsingar um Húfudjammið

Afhverju heitir þetta húfudjamm ?

Við í 4 bekkjarráði vorum svona að pæla í því hvað það væri fúlt að við hefðum aldrei fengið djammið okkar með húfurnar niðri í bæ þar sem við útskrifuðumst á þriðjudegi og vorum flogin til Króatíu á fimmtudeginum
Þannig að við ákváðum að við skildum sko bara víst fá okkar djamm með húfurnar!!

Allir því að dusta rikið af húfunum sínum og mæta með sparibrosið í spariförumHlæjandi

En hvenar og hvar ?

Húfudjammið er laugardaginn 14 oktober og verður haldið í sal sem að Fríkirkjan á. frábær staðsettning í 101 þannig að enginn leigubíll í bæinn og við verðum alveg upp í kvennó svona til að fá smá nostralgíu í þetta Glottandi

Hvað kosta svo herlegheitin ?

Herlegheitin kosta litlar 1000 kr, sem er nú ekki mikið miða við að bjór í bænum kostar 600 og ef þú færð þér skot með þá ertu komin upp í 1000, þarna getum við hinsvega komið með okkar egið bús !!

Húsið opnar kl ca 8 og við erum með salinn þanngað til kl 1 að nóttu

Þá held ég bara að allt sé komið, og ekkert annað að gera en bara að fara að hlakka til Svalur

Ef það eru hinsvega einhverjar spurningar endilega sejið þær bara hér fyrir neðan eða sláið á þráðin til mín (Eyrún FÞ), Sunnu eða Rut FF, Önnu Lindar í T, Örnu í NÞ eða Péturs í NF


ps. setti inn nokkrar myndir frá útilegunni í sumar þannig að þið sem fóruð í hana njótið, og þið sem ekki fóruð kíkið á það hverju þið mistuð af Glottandi

Hanna Lilja Oddgeirsdóttir
Engin athugasemd

Húfudjamm

22. september 2006 klukkan 13:53
Vill byrja á það þakka fyrir síðast, glöð að ég ákvað að skella mér í útileguna(sem reyndar var síðan í bíl Glottandi). Þið sem misstuð af þessu ekki hafa áhyggjur erum að pæla að hittast aftur að ári heyr heyr. En að öðrum,  nútímalegri og skemmtilegri málefnum Brosandi

DJAMM

Stefnan er tekin á laugardaginn 14.Október, þá ætlum við að hittast og vera glöð saman. Pælingin er að leigja sal og verður þess vegna að borga sig inn, ætlum að fá sal þar sem koma má með áfengi þannig að kostnaður verður ekki óyfirstíganlegur.
 Hlakka til að sjá ykkur Hlæjandi
kveðja
Sunna Gunnars


P.s  Eyrún ég er að bíða eftir myndunum

Hanna Lilja Oddgeirsdóttir
7 athugasemdir

Þetta er að skella á

28. júlí 2006 klukkan 17:57
Jæja, þá er þetta að skella á. Mér sýnist stefna í ágætismætingu, ekki súper góða, en ágæta þó. T bekkurinn er allavega að standa sig vel. Ég hef lítið feeback fengið frá bekknum mín, NF, en við erum allavega nokkur sem mætum.

En svo það komi nú smá upplýsingar um pleisið, þá er þetta nýlegt tjaldstæði rétt austan við Hvoldfsvöll. Ca 120 km frá Reykjavík, sem er alls ekkert hrikalegt. Þarna er vatns- og klósett aðstaða, útisvið, fórboltavöllur og fleira skemmtilegt. Núna um helgina er svokallað Vinnumannamót þarna þannig að það verður fullt af fólki og mikið stuð ef okkur langar að taka þátt í því, en við getum líka verið útaf fyrir okkur ef við viljum það frekar. Siggi bóndi var allavega meira en tilí að fá okkur, hann er rosa hress.

Til að þið finnið þetta nú alveg örugglega þá er bara keyrt ca 10 km framhjá hvolfsvelli og svo er beygt niðrað sjó einsog þegar farið er á Bakka flugvöll. Þar má sjá fínsta kortaskilti sem er gott að skoða áður en haldið er áfram. Keyrið svolítið eftir þessum vegi og svo er beygt til hægri  óg þá kemur tjaldstæðið fljótlega í ljós. Ekki svo flókið.

Fjölmennum og höfum gaman saman. ég treysti á að einhver komi með gítar, mig langar að syngja, syng ekkert sérlega vel, en hverjum er ekki sama útí guðsgrænni náttúrunni?

Ég er allavega farin að hlakka til, hvað með þig??
Hanna Lilja
Hanna Lilja Oddgeirsdóttir
2 athugasemdir

Masssa stemmari!!

23. júlí 2006 klukkan 22:16

Nú er alveg málið að sleppa sér!!!!! Búin að heyra í nett fallegu og ótrúlega skemmtilegu fólki og það ætla ALLIR að mæta næstu helgi í gleðina. Ætlar þú ekki örugglega með???  Eða ertu orðinn of gamall já eða kannski dottinn í pakkann;)

Svo að enginn eyði auka tanki af bensini er gott kort á
www.hallgeirsey.tk/ 

C U á laugardaginn
Anna Lind

Hanna Lilja Oddgeirsdóttir
4 athugasemdir

Er ekki komin tími á útilegu?

19. júlí 2006 klukkan 16:28
Jæja elsku gömlu kvenskælingarnir mínir
Þá er komið að því.....loksins segi ég nú bara. Það munu vera 2 ár síðan við kláruðum blessaðan kvennaskólann okkar og þá finnst mér nú alveg kominn tími smá reunion. Þar sem við erum öll svo þjóðrækin (er það ekki?) og elskum allt sem er íslenskt þá hafa nokkrar kvennaskólameyjar (fyrrverandi) tekið sig saman og planað Útilegu, því hvað er íslenskara en útilega um bjarta sumarnótt, í góðra vina hópi. Gítarspil og bjórdrykkja? Rifja aðeins upp Króatíutaktana? Ég lofa ekki sama hita samt, en það er aldrei að vita? En hver veit nema einhver finni eitt stykki broddgölt?

Þetta er allt að smella saman nuna og planið er allavega að skella sér út á Hallgeirsey 29-30 júlí, einmitt þar sem Verkfræði útilegan var 1.helgina í júlí, ég get allavega staðfest að það var svakalegt fjör þá. Og verður aftur. Það eru einhverjir að pæla í að vera tvær nætur, mæta á föstudeginum, þannig að ef fólk er í stuði fyrir svoleiðis þá endilega látið vita.

Annars munu allar nánari upplýsingar verða settar hérna inn, og ef þið eruð með einhverjar spurningar þá er um að gera að koma þeim á framfæri hérna, eða hafa samband við Eyrúnu, Önnu Lind, Sunnu eða mig. Og ef þið hafið einhverjar skemmtilegar hugmyndir....þá erum við opnar fyrir öllu.

Vona að það sé stemmning fyrir þessu....feedback væri vel þegið svo við vitum svona nokkurn vegin hvað við megum búast við mörgun :)
Hanna Lilja
Hanna Lilja Oddgeirsdóttir
13 athugasemdir